HERKÓLÚBUS EÐA RAUÐ REIKISTJARNA
V.M. Rabolú (1926-2000)
„Það var mér mikil fórn að semja þetta rit, þar sem ég lá rúmfastur og gat hvorki staðið í fæturna né sest upp. En með því ég sá nauðsyn þess að vara Mannkyn við yfirvofandi eyðileggingu heimsins lagði ég á mig þetta erfiði.“
„Herkólúbus eða Rauð Reikistjarna er fimm eða sex sinnum stærri en Júpíter. Hún er tröllvaxin og ekkert fær stöðvað hana né beint henni á nýja braut.“
„Vísindamenn og gervallur heimurinn eru skelfingu slegnir, endaþótt eyðingin sé ekki ennþá hafin, en guðsótti er ekki fyrir hendi hjá neinum Jarðarbúa. Þeir þykjast vera herrar og valdsmenn heimsins, almáttugir, en nú munu þeir komast að raun um, að vissulega er til Guðlegt Réttlæti sem dæmir okkur af verkunum.“
„Það eru miklar, mjög djúpar sprungur á hafsbotni, sem eru þegar í snertingu við eldvirkni Jarðar. Þær eru í beinu samhengi við kjarnorkutilraunir sem stundaðar eru af vísindamönnum og stórveldum sem telja sig vera almáttug. Þau hafa ekki lagt mat á afleiðingar ódæðisverkanna, sem þau hafa framið og halda áfram að fremja, jafnt gegn plánetunni og Mannkyninu.“
„Eldvirkni Jarðar er strax farin að samtengjast vatninu, og þar af leiðir að hvirfilbyljir hafa byrjað að gera vart við sig. Norður-Ameríkumenn nefna það „El Nino-fyrirbærið“. Það er ekki „El Nino“, heldur samtenging eldsins í Jörðu við vatnið sem dreifist um úthöfin. Af þessum sprungum leiðir, að hafskjálftar, landskjálftar og aðrar skelfingar munu eiga sér stað á láði og legi. Engin strandborg mun komast hjá að verða sópað burt, og löndin munu byrja að sökkva í hafið, vegna þess að möndull Jarðar er þegar tekinn að færast til vegna allra tilraunanna sem átt hafa sér stað.“
„Ég hef margsinnis átt saman við geimverur að sælda. Ég hef meðvitað komið til Venusar og Mars í astral-líkama mínum og get því borið vitni um, hversu stórkostlegir innbyggjarnir eru. Ég á engin orð til að lýsa vísdómi þeirra, menningu og engilfögru líferni.“
„Öll geimskip eru knúin sólarorku. Þau eru gerð af efni sem ekki er til hér og veitir viðnám bæði byssukúlum og öllu öðru. Þau eru heilsteypt, hafa engin samskeyti, rónagla eða bolta, og er stjórnað með stillihnöppum.“
„Sérhver mennsk vera hefur innra með sér Guðdómlegan Neista, sem nefndur er Sál, Búddhata eða Kjarni. Já, hann nefnist ýmsum nöfnum, en í reynd er um að ræða guðdómlegan neista, sem hvetur okkur og veitir okkur styrk til að takast á hendur andleg verkefni eins og það sem ég er að kenna. Þessi Kjarni eða Sál er fangelsuð í illsku okkar, brestum eða sálrænu sjálfi, sem gefið er innhverfa heitið „Egó“, og eru þess valdandi að Kjarninn fær ekki frelsi til að opinberast, því brestirnir hafa yfirhöndina og stjórna viljanum.“
„Með þessari viðleitni við að deyða Egóið, sem ég er að benda á, mun maður öðlast Vísindalegan Hreinleika og læra að elska Mannkynið. Sá, sem ekki vinnur að því að upplausn annmarkana, getur aldrei öðlast Hreinleika og ekki heldur fundið til ástar á öðrum, af því hann elskar ekki sjálfan sig.“
„Þetta eru Astralheimar eða „Fimmta Víddin“ þar sem þungi og fjarlægð eru ekki til og þar sem Astral-líkaminn á heima; líkami sem er nákvæmlega eins og holdlegi líkaminn, en er orkuþegi og ferðast með gífurlegum hraða, eins og hugsunin, og getur kannað hvað sem honum þóknast um gervallan Alheiminn.“
„Mantra er töfraþula sem leyfir okkur að fara úr líkamanum og koma í hann aftur með fullri meðvitund.“
„Kæri lesandi: Ég tala mjög skýrt til að þú skiljir þörfina á að koma sér til alvarlegra verka, því hver sá sem vinnur mun sleppa við hættuna. Þetta er ekki skráð til að búa til kenningar eða efna til umræðna, heldur til að þú upplifir þá sönnu fræðslu, sem ég læt í té með þessu riti, þar sem ekki er í annað hús að venda.“
Efnisyfirlit
- Inngangur
- Herkólúbus eða Rauð Reikistjarna
- Kjarnorkutilraunirnar og Úthöfin
- Geimverur
- Dauðinn
- Astral Vörpun
- Lokaorð
|
Technische Merkmale
- 64 Seiten
- Größe 12,5 x 18 cm
- gebunden
- Einband laminiert
- Verkaufspreis 7,00 €
|